Fram-Haukar mfl.kv 8-liða úrs
Stelpurnar unnu sigur á Fram í Framheimilinu í dag. Leikurinn endaði 30-23, staðan í hálfleik var 14-14. Framstelpur voru sprækar framan af og leikurinn jafn en í seinni hálfleik fóru Haukastelpur að taka á í vörninni og sigruðu örugglega eins og fyrr segir 30-23.
Stelpurnar hafa þannig unnið 8-liða úrslitin 2-0 og mæta annað hvort Val eða Víking í 4-liða úrslitum.
