Haukar-UMFA mfl.ka.

Strákarnir kláruðu leikinn með stæl, unnu 30-24. Þeir voru mjög vel “gíraðir” í leiknum og stóðu sig vel bæði í vörn og sókn. Afturelding klóraði í bakkann í seinni hálfleik og náði að minnka muninn í tvö mörk 21-19. Þá sögðu strákarnir okkar, hingað og ekki lengra og kláruðu leikinn, þrátt fyrir að vera full þolinmóðir í uppstökkunum. Frábær sigur hjá strákunum, sem nálgast deildarbikarinn óðfluga.
Markahæstir voru Aron og Halldór með 6 mörk og Rúnar 5.
Afturelding fékk 7 víti á móti 4 vítum Haukamanna og brottvísanir hjá okkur voru fimm en fjórar hjá Aftureldingu – en undur og stórmerki, við unnum samt leikinn. Það skyldi þó aldrei vera að Haukastrákarnir hefðu einhverja hæfileika í handbolta !!!

Haukar-UMFA mfl.ka.

Strákarnir kláruðu leikinn með stæl, unnu 30-24. Þeir voru mjög vel “gíraðir” í leiknum og stóðu sig vel bæði í vörn og sókn. Afturelding klóraði í bakkann í seinni hálfleik og náði að minnka muninn í tvö mörk 21-19. Þá sögðu strákarnir okkar, hingað og ekki lengra og kláruðu leikinn, þrátt fyrir að vera full þolinmóðir í uppstökkunum. Frábær sigur hjá strákunum, sem nálgast deildarbikarinn óðfluga.
Markahæstir voru Aron og Halldór með 6 mörk og Rúnar 5.
Afturelding fékk 7 víti á móti 4 vítum Haukamanna og brottvísanir hjá okkur voru fimm en fjórar hjá Aftureldingu – en undur og stórmerki, við unnum samt leikinn.