Tjörvi siglir utan

Þorvarður Tjörvi mun halda til Danmerkur til náms næstkomandi haust. Að sjálfsögðu hefur hann ekki sagt skilið við handboltann og hefur gert tveggja ára samning við danska úrvaldsdeildarliðið Arhus GF. Við óskum honum til hamingju með þennan samning og óskum honum alls hins besta í Danaveldi, bæði í leik og námi. Við hlökkum til að fá hann aftur heim til Hauka sigldan, forframaðann og reynslunni ríkari. Til hamingju Tjörvi !