Haukar-ÍBV mfl.kv.
Haukar unnu Vestmanneyinga verðskuldað á Ásvöllum í dag. Stelpurnar okkar voru seinar í gang og staðan í leikhléi var 10-12 Vestmanneyingum í hag. Í síðari hálfleik snerist dæmið gjörsamlega við eftir að Haukar jöfnuðu 13-13 og í framhaldi sáu Vestmanneyingar ekki til Eyja. Haukastelpurnar komust mest 6 mörkum yfir og lokatölur leiksins urðu 24-20 Haukum í vil. Markahæstar í liði Hauka voru Inga Fríða með 10 mörk, Thelma með 6 mörk, Harpa og Hanna með 3 mörk hvor, aðrar minna.
Það setti skemmtilegan svip á leikinn er fjölmenni úr Keflavík kom og studdi Haukaliðið en þetta eru vinir og velunnarar Gústafs þjálfara og nú sem oft áður meikuðu þeir það Gústi en lagið Meikaðu það Gústi var leikið í leikslok við mikinn fögnuð undirritaðs.
DH/JH
