Haukar-KA mfl.ka.
Haukar og KA skildu jöfn á Ásvöllum í dag. Leikurinn var jafn allan tímann og staðan í hálfleik var 15-15 og síðari hálfleikur fór 15-15, sem sagt leikurinn endaði 30-30. Okkar menn byrjuðu bæði fyrri og seinni hálfleik vel en KA menn komust alltaf inn í leikinn og eins og fyrr segir endaði hann 30-30. Markahæstu leikmenn Hauka voru Halldór með 8 mörk, Aron með 6, Ásgeir Örn 5 mörk, Einar Örn og Rúnar með 4 mörk hvor. Þetta er annað stigið sem Haukar missa á leiktímabilinu en þeir tróna langefstir á toppi deildarinnar.
dh
