3.fl.karla SS-bikarinn

Eins og allir vita eru strákarnir í 3.fl. karla komnir í úrslit í SS-bikarnum. Þeir spila við Aftureldingu og verður leikurinn sunnudaginn 17. febr. kl. 13.30 í Laugardalshöll.

Þennan dag verður einnig leikið til úrslita í 4.fl.kvenna kl. 12.00 Stjarnan-ÍR, ungl.fl. kvenna kl. 15.30 Grótta-KA og 2.fl. karla kl. 17.30 ÍR-Valur. Sama umgjörð verður á þessum leikjum og hjá meistaraflokkunum á laugardeginum ..

Við hvetjum alla til að mæta og fylgjast með úrslitum yngri flokka og þá sérstaklega okkar strákum í 3.fl.karla Haukar-UMFA, sem hefja leik eins og fyrr segir kl. 13.30.