Stelpurnar á morgun, laugardag
Minnum á leikinn hjá stelpunum á morgun, laugardag. FH-HAUKAR kl. 13:30 í Kaplakrika. Allir að mæta – Áfram Haukar.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Minnum á leikinn hjá stelpunum á morgun, laugardag. FH-HAUKAR kl. 13:30 í Kaplakrika. Allir að mæta – Áfram Haukar.
Ekki byrjaði árið vel hjá strákunum okkar, en þeir töpuðu fyrir ÍBV á Ásvöllum í kvöld 32-36. Leikurinn var jafn framan af fyrri hálfleik, 2-2, 3-3, 4-4. ÍBV var síðan yfir 4-6 og 8-10. Aftur var jafnt 11-11, 12-12, 13-13 og 14-14 en undir lok hálfleiks fór allt í baklás hjá okkar mönnum og gestirnir…
Loksins fer boltinn að rúlla hjá stráknum okkar. Á morgun eiga þeir leik við ÍBV á Ásvöllum kl. 19:15. Allir að mæta og styðja strákana. ÁFRAM HAUKAR
Stelpurnar okkar unnu glæsilegan sigur á Val á Ásvöllum í dag, níu marka stórsigur 27-18. Í byrjun var leikurinn jafn og spennandi. Haukastelpur skoruðu fyrsta markið en Valur gerði næstu þrjú. Jafnt var 4-4, 5-5, 7-7 og 8-8 en undir lok fyrri hálfleiks kom góður kafli hjá stelpunum okkar og náðu þær fjögurra marka forskoti…
Stelpurnar okkar unnu góðan sigur 28-20 á GróttuKR á Ásvöllum í kvöld. Það var jafnræði með liðunum í byrjun, jafnt á öllum tölum í 6-6, en þá náði GróttaKR 2ja marka forskoti 6-8. Jafnt var aftur 8-8 og 9-9 en þá kom góður kafli hjá Haukum og sást happastaðan 13-10 á töflunni við mikla gleði…
Það verður nóg að gera hjá okkur um helgina og rétt að minna á helstu viðburði. Á föstudagskvöldið mæta allir herrar á Herrakvöldið. Fjölliðamót hjá 5.fl. er alla helgina. Haukar sjá um mótið hjá 5.fl.karla –actavis mótið – og verður leikið bæði á Ásvöllum og Strandgötu. Mótið hjá 5.fl.kvenna. verður á Seltjarnarnesi í umsjón Gróttu….
Stelpurnar okkar byrjuðu árið vel og unnu góðan sjö marka sigur á Fram í Framheimilinu í dag. Þær höfðu yfirhöndina allan leikinn, í hálfleik var staðan 11-14 og lokastaða 19-26. Það var hálfgerður haustbragur á leiknum en stelpurnar okkar gerðu það sem til þurfti og unnu góðan vinnusigur.
Nú styttist i fyrsta leikinn á nýju ári hjá stelpunum okkar. Á laugardaginn kl. 15:00 spila þær við Fram í Framheimilinu. Allir að mæta og styðja stelpurnar okkar. ÁFRAM HAUKAR
Herrakvöld Hauka 2005 föstudaginn 21. janúar að Ásvöllum Miðaverð kr. 2500 Húsið opnar kl. 19:30 Borðhald hefst tímanlega
Í dag , gamlársdag var að venju valinn Íþróttamaður Hauka. Tillnefndir voru fulltrúar frá öllum deildum félagsins og þar voru samankomnir frábærir fulltrúar Hauka. Það var okkar í handknattleiksdeildinn mikil ánægja að okkar maður, Ásgeir Örn Hallgrímsson var kjörinn Íþróttamaður Hauka 2004. Hann bar titilinn einnig s.l. ár og þarf vart að kynna strákinn. Ásgeir…