Íþróttamaður Hauka 2004

Í dag , gamlársdag var að venju valinn Íþróttamaður Hauka. Tillnefndir voru fulltrúar frá öllum deildum félagsins og þar voru samankomnir frábærir fulltrúar Hauka.

Það var okkar í handknattleiksdeildinn mikil ánægja að okkar maður, Ásgeir Örn Hallgrímsson var kjörinn Íþróttamaður Hauka 2004. Hann bar titilinn einnig s.l. ár og þarf vart að kynna strákinn. Ásgeir Örn er orðinn einn af okkar afreksmönnum og er glæsilegur fulltrúi Hauka.

Við óskum Ágeiri Erni innilega til hamningju.