Ásvellir í kvöld
Tveir mikilvægir leikir á Ásvöllum í kvöld. Mfl.kvenna spilar við Fram kl. 18:00 og mfl. karla kl. 20:00 við Val. Allir að mæta – Áfram Haukar
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Tveir mikilvægir leikir á Ásvöllum í kvöld. Mfl.kvenna spilar við Fram kl. 18:00 og mfl. karla kl. 20:00 við Val. Allir að mæta – Áfram Haukar
Strákarnir okkar skelltu sér á toppinn með sigri á nýkrýndum bikarmeisturum ÍR í Austurberginu í kvöld. Lokatölur 24-31. Leikurinn var jafn í byrjun en í stöðunni 5-5 tóku okkar menn forystu og héldu henni það sem eftir var leiks. Í hálfleik var staðan 12-14 fyrir Hauka. Í seinni hálfleik náðu heimamenn aldrei að ógna góðu…
Minnum á leikinn hjá strákunum á morgun, miðvikudag en þá heimsækja þeir nýkrýnda Bikarmeistara í Austurbergið. Leikurinn við ÍR hefst kl. 19:15. Allir að mæta – ÁFRAM HAUKAR
Stelpurnar okkar unnu glæsilegan stórsigur á Víking í Víkinni í kvöld. Í hálfleik var staðan 11-21 og lokatölur 21-40. Já þær skoruðu fjörutíu mörk og unnu með nítján mörkum, ótrúlegir yfirburðir Hauka. Víkingur skoraði fyrsta markið en síðan ekki söguna meir. Haukar náðu strax sjö marka forystu 1-8 og 4-11 og í hálfleik var munurinn…
Strákarnir okkar unnu góðan sigur á Víkingum á Ásvöllum í dag, lokatölur 32-26. Leikurinn var jafn í upphafi en í stöðunni 4-4 sigu okkar menn rólega framúr og í hálfleik höfðu þeir sex marka forskot 16-10. Fljótlega í byrjun síðari hálfleiks var munurinn orðinn 9 mörk 20-11 og eftir það var aldrei spurning hvoru megin…
Strákarnir okkar unnu frábæran tíu marka sigur 33-23 á Val í Valsheimilinu í kvöld. Valur byrjaði betur 3-1 og 4-2. Haukar jöfnuðu 4-4 og komust yfir 4-5 og eftir það létu þeir forystuna aldrei af hendi. Í hálfleik var staðan 13-15 og komu strákarnir okkar fullir sjálfstrausts til leiks í seinni hálfleik. Þeir juku forskotið…
Stelpurnar okkar tóku á móti Stjörnunni á Ásvöllum í kvöld og lauk leiknum með jafntefli 27-27. Gestirnir byrjuðu betur en fljótlega tóku Haukar frumkvæðið og náðu góðri forystu 11-7 en Stjarnan jafnaði 11-11 og jafnt var í hálfleik 13-13. Stelpurnar okkar komu vel stemmdar frá búningsklefanum og leiddu leikinn fram á síðustu mínútu. Þær náðu…
Stelpurnar okkar fá Stjörnuna í heimsókn kl. 18:00 á Ásvelli. Strákarnir okkar heimsækja Val á Hlíðarenda kl. 20:00. Allir að mæta – Áfram Haukar
Fundur með stuðningsmönnum verður á mánudagskvöldið 14. febrúar kl. 20:00. Allir velkomnir að ræða komandi baráttu við leikmenn og þjálfara. Haukar í horni, trommarar, gamlir snillingar, þögli áhorfandinn og allt hitt Haukafólkið, látið sjá ykkur í léttu spjalli yfir kaffi og kökum.
Úrslitaleikurinn í Bikarkeppninni í körfubolta fer fram sunnudaginn 13. feb kl. 13.30 og leika Haukar gegn Grindavík í mfl. kvenna. Mikið húllumhæ verður á Ásvöllum frá kl.11.00 á sunnudag, andlitsmálun og fleira. Rútuferðir verða frá Ásvöllum kl 12.30 í Laugardalshöllina. Nú í ár eru það körfustelpurnar sem sjá um Haukadag í Höllinni og við hvetjum…