4-liða úrslitin hjá strákunum
Undanúrslitin hjá stákunum byrja á morgun, þriðjudag og eins og allir eiga að vita er það Valur sem sækir okkur heim. Hefst leikurinn kl. 19:15 á Ásvöllum og er skyldumæting hjá öllum Haukum. Áfram Haukar
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Undanúrslitin hjá stákunum byrja á morgun, þriðjudag og eins og allir eiga að vita er það Valur sem sækir okkur heim. Hefst leikurinn kl. 19:15 á Ásvöllum og er skyldumæting hjá öllum Haukum. Áfram Haukar
Stelpurnar okkar unnu góðan sigur 26-17 á Val í Valsheimilinu í kvöld og tryggðu sér þar með sæti í úrslitaleikjunum um Íslandsmeistaratitilinn. Þær mættu fremur rólegar til leiks og var jafnræði með liðunum fyrri hluta hálfleiksins. Þær sigu síðan rólega framúr og voru komnar með örugga forystu í hálfleik 7-12. Í seinni hálfleik héldu þær…
Stelpurnar okkar héldu vel uppá afmælisdag félagins og unnu öruggan stórsigur á Val 33-19 í fyrsta leik í 4-liða úrslitum á Ásvöllum í kvöld. Haukar skorðu fyrsta markið og tóku öll völd á vellinum strax í byrjun og fljótt var staðan 6-1. Þær keyrðu áfram og breyttu stöðunni í 13-4 og í hálfleik var 15-6….
Í gærkvöldi var skrifað undir nýjan samning við Kristinu Matuzevièiûtë. Það er frábært fyrir mfl.kvenna að Kristina verði áfram hjá okkur og gleðitíðindi fyrir alla Hauka.
4-liða úrslitin byrja á morgun hjá mfl.kvenna. Stelpurnar okkar etja kappi við Val og er fyrsti leikur á morgun kl. 19:15 á Ásvöllum. Nú verða allir að mæta og styðja við bakið á stelpunum. Áfram Haukar
Strákarnir okkar eru komnir áfram í 4-liða úrslitin eftir sigur á FH í Kaplakrika í kvöld í framlengum leik. Í hálfleik var staðan 13-13 og 27-27 í lok venjulegs leiktíma. Í framlengingu tóku Haukar völdin og unnu 34:30. Jafnræði var með liðunum nánast allan leikinn, það var þetta 2-3ja marka sveifla, síðan var jafnt og…
Strákarnir okkar unnu öruggan sigur 29-22 á FH á Ásvöllum í kvöld. Haukar skoruðu fyrstu fjögur mörkin og lögðu grunn að góðum sigri. Í hálfleik var staðan 15-11. Þeir byrjuðu seinni hálfleikinn líka vel og staðan var fljótt 20-12. Sigurinn var aldrei í hættu, FH náði aldrei að ógna forskotinu og sigurinn öruggur allan leikinn….
Úrslitakeppnin hefst á morgun, þriðjudag hjá strákunum. Fyrsti leikurinn hjá okkar mönnum er við FH og hefst kl. 20:00 á Ásvöllum. Allir að mæta. Áfram Haukar
Stelpurnar okkar unnu góðan sigur 30-17 á Fram í kvöld. Sigurinn var öruggur frá upphafi leiks og í hálfleik var staðan 8-16 fyrir Hauka. Þær mættu betur stemmdar til leiks í kvöld en á laugardag og kláruðu leikinn örugglega og tryggðu sér þar með sæti í 4-liða úrslitunum
Í gær unnu Haukar 2 glæsilegan sigur á ÍR 24-19 í úrslitaleik í Utandeildinni. Með sigrinum urðu þeir Íslandsmeistarar Utandeildar 2005. Við óskum Bumbunum innilega til hamingju