Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Samúel Ívar Árnason

    Samúel Ívar Árnason, hornamaðurinn snjalli hefur gengið til liðs við Hauka. Við væntum mikils af Samúel og erum þess fullviss að hann á eftir að gera góða hluti með Haukaliðinu. Hann á eftir að smellpassa í hópinn með strákunum okkar. Við bjóðum Samúel innilega velkomin í Haukafjölskylduna og hlökkum til að sjá hann á vellinum…

  • Viðurkenningar á lokahófi yngri fl.

    Á uppskeruhátíð yngri flokka fengu eftirtalir viðurkenningar: 3. fl. ka. Besti leikmaður: Sigurbergur Sveinsson 3. fl. ka. Mestu framfarir: Þröstur Þráinsson 4. fl. kvenna: Besti leikmaður: Eva Hauksdóttir 4. fl. kvenna: Mestu framfarir: Andrea Sól Kristjánsdóttir 4.fl. karla: Besti leikmaður: Andri Árnason 4.fl. karla: Mestu framfarir: Arnór Jón Sigurðsson 5. fl. kvenna: Mestu framfarir: Alexandra…

  • Uppskeruhátíð yngri flokka

    Minnum á uppskeruhátíð yngri flokka kl. 17:30 á morgun, miðvikudag á Ásvöllum. Dagskrá verður með hefðbundnum hætti, veittar verða viðurkenningar hjá yngri flokkunum og síðan verða veitingar í boði deildarinnar, grillaðar pylsur og safi að hætti hússins. Veltibíllinn frá SJÓVÁ verður á staðnum. Mætum öll, ungir sem aldnir. Haukafélagar, takið ykkar nánustu með, því hvað…

  • Kári Kristján Kristjánsson

    Línumaðurinn sterki Kári Kristján Kristjánsson hefur gengið til liðs við Hauka. Strákarnir okkar fá þar frábæran liðsstyrk, enda Kári gríðarlega öflugur leikmaður. Við erum þess fullviss að hann á eftir að láta mikið að sér kveða og á eftir að blómstra enn frekar í Haukatreyjunni. Við bjóðum Kára innilega velkominn í Haukafjölskylduna og bíðum spennt…

  • Lokahóf HSÍ 2005

    Lokahóf HSÍ var haldið á Brodway í gærkvöld. Þar var kynnt val leikmanna og þjálfara á þeim bestu í DHL deildinni. Sumt kom á óvart en annað var eftir bókinni. Háttvísiverðlaun HDSÍ Anna Bryndís Blöndal – Stjarnan Bjarki Sigurðsson – Víkingur Valdimarsbikarinn 2005 Ásgeir Örn Hallgrímsson – Haukar Markahæsti leikmaður DHL deildar Halldór Jóhann Sigfússon…

  • Uppskeruhátíð yngri flokka

    Uppskeruhátíð yngri flokka deildarinnar verður miðvikudaginn 18 maí kl. 17:30 í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum. Dagskrá verður með hefðbundnum hætti, veittar verða viðurkenningar hjá yngri flokkunum og síðan verða veitingar í boði deildarinnar, grillaðar pylsur og safi að hætti hússins. Þetta er lokahnykkurinn á velheppnuðu keppnistímabili. ÍSLANDSMEISTARAR ÚR MFL. KARLA OG KVENNA MÆTA TIL AÐ AFHENDA…

  • HAUKAR ERU BESTIR

    Eins og við höfum sagt er alltaf gaman að vera Haukari en þessa dagana er það hreint út sagt magnað. Haukar skrifuðu sig á spjöld sögunnar með glæsilegum árangri í vetur. Bæði stelpurnar okkar og strákarnir okkar eru Deildarmeistarar og Íslandsmeistarar. Bæði liðin unnu úrslitakeppnina 7-0 eða 14-0 hjá félaginu. Þetta er ótrúlegur árangur sem…

  • Strákarnir okkar

    Það er alltaf gaman að vera Haukari en þessa dagana er það hreint út sagt magnað. Stelpurnar okkar sýndu snilld sína fyrir viku og í gærkvöld var komið að strákunum okkar, þá sýndu þeir og sönnuðu að þeir eru langbestir. Þeir unnu sama afrek og stelpurnar okkar, unnu úrslitakeppnina 7-0 og eru Deildarmeistrarar 2005 og…

  • ÍSLANDSMEISTRAR 2005

    Strákarnir okkar unnu frækilegan sigur á ÍBV á Ásvöllum í kvöld 28-24 og unnu þar með úrslitaeinvígið á mjög sannfærandi hátt. Stórkostlegur árangur og uppskeran titilinn ÍSLANDSMEISTARAR 2005. Haukar byrjuði leikinn af krafti og vörnin var hreint geggjuð í upphafi. Þeir sýndu það og sönnuðu að þeir ætluðu sér “dolluna” í kvöld. Við óskum strákunum…