Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Evrópudráttur

    Í morgun var dregið í Evrópukeppninni og við erum bara ánægð með dráttinn. Strákarnir drógust á móti H.C. Berchem frá Lúxemborg í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og stelpurnar drógust á móti Pelplast Handball Salerno frá Ítalíu í EHF keppninni. Fyrri umferðin verður helgina 3. eða 4. september og seinni umferðin viku síðar 9. eða 10. september.

  • Arnar Pétursson

    Arnar Pétursson hefur gengið frá samningi við Hauka. Það er mikið gleðiefni að fá Arnar í okkar herbúðir og er hann mikill liðsstyrkur fyrir strákana. Við bjóðum Arnar innilega velkominn í Hauka og hlökkum til að sjá hann í rauðu treyjunni næsta vetur.

  • Birkir Ívar endurnýjar samning

    Í dag var skrifað undir samning við ungan og efnilegan, þ.e. Árna Þór og í kvöld var endurnýjaður samningur við einn “gamlan” og góðan, þ.e. Birki Ívar. En Birkir Ívar er einn af þeim “gömlu” í liðinu þó hann sé ennþá ungur að árum drengurinn. Birki Ívar þarf vart að kynna, við teljum hann besta…

  • Árni Þór Sigtryggsson

    Í dag gengu Haukar frá samningum við Árn Þór Sigtryggsson. Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir félagið en eins og allir vita er Árni Þór örvhent stórskytta að norðan. Við bindum miklar vonir við Árna Þór, hann er mjög metnaðarfullur handboltamaður og var valinn efnilegasti leikmaður DHL deildarinnar í vor. Haukar vita líka að Árni Þór…

  • Úrvals Útsýnarmótið 2005

    Um helgina fer fram æfingamót Úrvals útsýnar fyrir liðin sem fara á Partille cup í Svíþjóð í byrjun júlí. Á mótinu taka þátt lið í 4. og 5.flokki karla og kvenna. Mótið verður haldið hjá okkur Haukamönnum á Ásvöllum. Mótið er hægt að nálgst með því að fara í „yngri flokkar“ hér til hliðar og…

  • Guðbjörg Guðmannsdóttir

    Guðbjörg Guðmannsdóttir hefur gengið til liðs við Hauka og er það gríðarlegur liðsstyrkur fyrir stelpurnar í mfl. kvenna. Guðbjörg hefur staðið sig frábærlega undanfarin ár og við vitum að hún á eftir að gera ennþá betur. Við bjóðum Guðbjörgu innilega velkomna til Hauka.

  • Lokahóf deildarinnar

    Lokahóf deildarinnar var haldið á Ásvöllum í gærkvöldi og var þar fagnað glæsilegum árangri vetrarins, en eins og allir ættu að vita eru bæði mfl. karla og mfl. kvenna Deildarmeistarar og Íslandsmeistrarar. Stórkostlegur árangur og sá besti sem um getur í sögunni en aldrei áður hefur félag unnið þessa báða titla, bæði í karla-og kvennaflokki….

  • SJÓVÁ dagur á Ásvöllum

    Þann 4. júní kl. 10:00-12:00, fer fram á Ásvöllum handknattleikur í tilefni af Sjóvá deginum. Þátttakendur eru FH og Haukar enda er Sjóvá styrktaraðili yngriflokkastarfs í báðum félögunum. Milli kl. 10:00 og 11:00 leika 7. fl. karla og kvenna. Krakkar fæddir 1996 og 1995. Milli kl. 11:00 og 12:00 leika 6. fl. karla og kvenna….

  • Lokahófið

    Laugardaginn 4. júní verður lokahóf Handknattleiksdeilar Hauka haldið í veislusalnum á Ásvöllum. Húsið opnar kl. 21:00 Verðlaunaafhending fer fram kl. 22:00 Mætum öll og fögnum stórglæsilegum árangri vetrarins. Sjáumst hress Stjórnin