Árni Þór Sigtryggsson

Í dag gengu Haukar frá samningum við Árn Þór Sigtryggsson. Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir félagið en eins og allir vita er Árni Þór örvhent stórskytta að norðan. Við bindum miklar vonir við Árna Þór, hann er mjög metnaðarfullur handboltamaður og var valinn efnilegasti leikmaður DHL deildarinnar í vor. Haukar vita líka að Árni Þór er af góðu kyni kominn, en bróðir hans Rúnar lék við góðan orðstýr með Haukum.

Við hlökkum til að sjá Árna Þór með Haukum næsta haust og bjóðum hann hjartanlega velkominn í Haukafjölskylduna og erum viss um að hann á eftir að eiga góða tíma með okkur.