Um helgina fer fram æfingamót Úrvals útsýnar fyrir liðin sem fara á Partille cup í Svíþjóð í byrjun júlí. Á mótinu taka þátt lið í 4. og 5.flokki karla og kvenna. Mótið verður haldið hjá okkur Haukamönnum á Ásvöllum. Mótið er hægt að nálgst með því að fara í „yngri flokkar“ hér til hliðar og í mót. Þar eru 3 mót sem heita Úrvals Útsýnarmótið en það er allt það sama.