Birkir Ívar endurnýjar samning

Í dag var skrifað undir samning við ungan og efnilegan, þ.e. Árna Þór og í kvöld var endurnýjaður samningur við einn “gamlan” og góðan, þ.e. Birki Ívar. En Birkir Ívar er einn af þeim “gömlu” í liðinu þó hann sé ennþá ungur að árum drengurinn.
Birki Ívar þarf vart að kynna, við teljum hann besta markmann landsins og hann á eftir að taka nokkra boltana á næsta tímabili. Við erum verulega stolt að hafa hann með okkur í Haukum næstu árin.