Evrópudráttur

Í morgun var dregið í þriðju umferð í Evrópukeppninni hjá strákunum. Þeir drógust á móti franska liðinu Paris Handball og fer fyrri leikurinn fram úti 4. eða 5. nóv og síðari leikurinn heima á Ásvöllum 11. eða 12. nóv.
Meira síðar.

Evrópudráttur

Í gær var dráttur í Evrópukeppninni og mæta strákarnir okkar tapliðinu úr leikjum Constanta frá Rúmeníu og Pallamano Conversano frá Ítalíu. Þessi lið mætast í forkeppni meistaradeildarinnar 2. og 9 sept.
Fyrri leikur strákanna verður úti helgina 30.sept./1.okt og seinni leikurinn heima viku síðar.

Evrópudráttur

Í hádeginu í dag fór fram fyrsti drátturinn fyrir Evrópukeppnirnar næsta vetur.

Stelpurnar okkar spila í Evrópukeppni bikarhafa eða Cup Winners´Cup og drógust þær á móti liði frá Ungverjalandi, Cornexi Alcoa-HSB Holding. Fyrri leikurinn verður heima 14/15 október og síðari leikurinn úti viku seinna eða 21/22 október.

Strákarnir hefja leik í 2. umferð EHF keppninnar og verður dregið hjá þeim 22. ágúst. Þeir eiga fyrsta leik um mán.mótin sept./okt.

Evrópudráttur

Í morgun var dregið í Evrópukeppninni og við erum bara ánægð með dráttinn. Strákarnir drógust á móti H.C. Berchem frá Lúxemborg í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og stelpurnar drógust á móti Pelplast Handball Salerno frá Ítalíu í EHF keppninni.

Fyrri umferðin verður helgina 3. eða 4. september og seinni umferðin viku síðar 9. eða 10. september.