Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Haukar-Pelplast

    Stelpurnar okkar spiluðu sinn fyrsta Evrópuleik í kvöld og unnu stórsigur 38-19 á ítalska liðinu Pelplast. Sigurinn var aldrei í hættu, Haukar höfðu yfirhöndina frá fyrstu mínútu og áttu þær ítölsku aldrei möguleika gegn sterku liði Hauka. Markahæstar voru Martha og Guðbjörg með 8 mörk hvor. Inga Fríða var með 7 mörk, Hanna Guðrún og…

  • Evrópukeppni kvenna

    Næstkomandi sunnudag þann 4. september leikur meistaraflokkur kvenna í Haukum sinn fyrsta leik í Evrópukeppni. Leikurinn er gegn Pelplast Handball Salerno frá Ítalíu og fer fram í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum og hefst kl. 20:00. Af því tilefni er aðgangur ókeypis og hvetjum við handknattleiksunnendur til að fjölmenna á Ásvelli og styðja við bakið á…

  • Reykjavík-Open

    Reykjavík Open hefst á morgun miðvikudag og hvetjum við alla til að kíkja á leikina og sjá hvernig liðin koma undan sumri. Stelpurnar eru í riðli með FH, Val og Gróttu og fara allir kvennaleikirnir fram í Grafarvogi, nema úrslitaleikir á laugardag eru í Austurbergi. Hér má sjá leikjaplan hjá mfl.kvenna. Strákarnir eru í riðli…

  • Ný æfingatafla

    Ný æfingatafla verður sett inn á næstu dögum, þangað til er hægt að nálgast hana í excel formi hér. Æfingar byrja skv. töflu : á Ásvöllum 23. ágúst í Bjarkarhúsi 1. sept. í Strandgötu 3. sept

  • Æfingar yngri flokka

    Kæru iðkendur Nú er sumarið að enda og handboltaiðkendur geta farið að hlakka til starfsins framundan. Við Haukamenn ætlum að hefja æfingar skv. æfingatöflu þriðjudaginn 23. ágúst næstkomandi. Það er verið að ljúka töflugerðinni og birtum við hana á heimasíðunni innan skamms. Munið að láta félagana vita, það er ekki víst að allir sjái þessa…

  • U-21 landsliðið á HM

    U-21 landsliðið hélt utan i morgun á HM í Ungverjalandi. Haukar eiga frábæra fulltrúa í hópnum en það eru þeir Andri Stefan, Árni Þór og Kári og svo auðvitað Ásgeir Örn sem við teljum að sjálfsögðu með Haukastrákunum. Fyrsti leikurinn verður á þriðjudaginn við Kongó en hin liðin í B-riðili eru Chile, Spánn og Þýskaland….

  • Guðmundur Pedersen

    Mfl. karla fékk góðan liðsstyrk í dag en þá gekk Guðmundur Pedersen til liðs við Hauka. Eins og menn vita er Guðmundur mjög öflugur hornamaður og hann á örugglega eftir að gera góða hluti á nýjum slóðum. Við bjóðum Guðmund innilega velkomin til Hauka og vitum að hann á eftir að eiga frábærar stundir með…

  • Haukar fjölga sér

    Tveir sætir snáðar komu í heiminn í gær. Hún Nína okkar eignaðist frumburðinn sinn, myndarlegan strák og eins eignaðist hann Jón Örn myndarlegan strák í gær. Við Haukar óskum Nínu og Óskar sem og Hildi og Jóni Erni innilega til hamingju og bjóðum litlu krúttin hjartanlega velkomin í heiminn og óskum þeim alls hins besta…