Kári Kristján Kristjánsson
Línumaðurinn sterki Kári Kristján Kristjánsson hefur gengið til liðs við Hauka.
Strákarnir okkar fá þar frábæran liðsstyrk, enda Kári gríðarlega öflugur leikmaður. Við erum þess fullviss að hann á eftir að láta mikið að sér kveða og á eftir að blómstra enn frekar í Haukatreyjunni.
Við bjóðum Kára innilega velkominn í Haukafjölskylduna og bíðum spennt og full tilhlökkunar að sjá til hans næsta vetur.
