Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Haukar-Fram mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar unnu Fram 27-24 í fyrsta leik í 8-liða úrslitum á Ásvöllum í kvöld. Það var ekki rismikill leikurinn sem þær sýndu og segja má að allir, þ.e. leikmenn, dómarar og áhorfendur hafi átt slakan dag. Stelpurnar okkar skoruðu fyrsta markið og héldu forystu eftir það. Í hálfleik var staðan 16-10. Þrátt fyrir að…

  • U-21 árs landsliðið

    Við óskum strákunum okkar þeim Ásgeiri Erni og Andra Stefan svo og öllum hinum í 21-árs landsliðinu til hamingju með árangurinn. Þeir stóðu sig frábærlega um helgina og tryggðu sér á öruggan hátt sæti í Úrslitakeppni HM sem spiluð verður í sumar. Það var gaman að fylgjast með U-21 árs liðinu, þeir sýndu á köflum…

  • Ramune endurnýjar samning

    Í kvöld var skrifað undir nýjan samning við Ramune Pekarskyte, stórskyttuna í mfl. kvenna. Samningurinn er til tveggja ára eða út tímabilið 2006-2007 og er það mikið gleðiefni fyrir mfl.kvenna og alla Hauka að Ramune ætlar að vera með okkur áfram næstu árin.

  • Haukadagur á Ásvöllum

    Þetta var sannkallaður Haukadagur á Ásvöllum í gær. Að vinna tvo Deildarmeistaratitla á dag er toppurinn. Það var frábært að vera með bæði liðin okkar í úrslitum um Deildarmeistaratitil á sama degi og sama stað og það á heimavelli. Enda var gleðin og ánægjan þvílík þegar báðir bikararnir voru okkar, að menn gátu vart hætt…

  • Strákarnir deildarmeistarar

    Strákarnir fylgdu stelpunum eftir og toppuðu fullkominn dag þegar þeir sigruðu ÍR í mögnuðum leik og tryggðu sér fjórða deildarmeistara titilinn í röð. Frétt mbl.is verður einnig látin nægja í bili: Haukar eru deildarmeistarar í úrvalsdeild karla í handknattleik, DHL-deild, eftir 31:29 sigur gegn ÍR í úrslitaleik um efsta sæti deildarinnar. ÍR féll því niður…

  • Stelpurnar deildarmeistarar

    Stelpurnar völtuðu yfir gestina frá vestmannaeyjum og tryggðu sér deildarmeistara titilinn. Frétt mbl.is um leikinn verður látin nægja til að byrja með: Kvennalið Hauka í handknattleik varð í dag deildameistari í 1. deild, DHL-deild, en Haukar lögðu ÍBV með 14 marka mun í úrslitaleik um efsta sæti deildarinnar, 35:21. Valur lagði Stjörnuna á sama tíma…

  • Haukar-Valur mfl.karla

    Valur heimsótti strákana okkar á Ásvelli í kvöld og lauk leiknum með góðum sigri okkar manna 28-27. Tæpt var það en sigurinn frábær og stigin tvö dýrmæt. Þessi leikur var ólíkur fyrri leik kvöldsins hjá stelpunum, hér var spennan í hámarki. Gestirnir skoruðu fyrsta markið en Haukar jöfnuðu strax 1-1 og jafnt var í 4-4….

  • Haukar-Fram mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar unnu sannkallaðan STÓRSIGUR á Fram á Ásvöllum í kvöld. Lokatölur 50-21. Þetta er ekki prentvilla, þær skoruðu fimmtíu mörk stelpurnar okkar, sennilega mesta markaskor í kvennabolta frá upphafi. Í hálfleik var staðan 26-7 og höfðu Haukar algjöra yfirburði frá upphafi leiks. Spennan var engin fyrr en rétt undir lok leiks að þær lögð…