U-21 árs landsliðið

Við óskum strákunum okkar þeim Ásgeiri Erni og Andra Stefan svo og öllum hinum í 21-árs landsliðinu til hamingju með árangurinn. Þeir stóðu sig frábærlega um helgina og tryggðu sér á öruggan hátt sæti í Úrslitakeppni HM sem spiluð verður í sumar.

Það var gaman að fylgjast með U-21 árs liðinu, þeir sýndu á köflum snilldartilþrif og ljóst að framtíð handboltans er björt með alla þessa frábæru handboltakappa.