Víkingur-Haukar mfl.kvenna

Stelpurnar okkar unnu glæsilegan stórsigur á Víking í Víkinni í kvöld. Í hálfleik var staðan 11-21 og lokatölur 21-40. Já þær skoruðu fjörutíu mörk og unnu með nítján mörkum, ótrúlegir yfirburðir Hauka.

Víkingur skoraði fyrsta markið en síðan ekki söguna meir. Haukar náðu strax sjö marka forystu 1-8 og 4-11 og í hálfleik var munurinn tíu mörk. Í seinni hálfleik minnkaði Vikingur í sjö en þá skelltu stelpurnar okkar aftur í lás í vörninni og bættu við og unnu eins og áður segir frábæran sigur 21-40.

Víkingur-Haukar mfl.kvenna

Í kvöld spiluðu stelpurnar okkar fyrsta deildarleikinn í vetur við Víking í Víkinni. Þær mættu vel stemmdar til leiks og voru lokatölur 25-31 og öruggur sigur í höfn.

Leikurinn lofar góðu fyrir veturinn, stelpurnar okkar byrjuðu betur og höfðu yfirhöndina nánast allan leikinn. Undir lok fyrri hálfleiks náði Víkingur þó að jafna og komast yfir 12-11, en stelpurnar okkar náðu góðum endaspretti og staðan í hálfleik var 13-15.
Í seinni hálfleik héldu stelpurnar okkar þessu forskoti og var staðan 19-21 þegar seinni hálfleikur var hálfnaður. Þá bættu þær í og náðu mest 9 marka forystu.
Glæsilegur sigur og tvö stig í pottinn.

Víkingur-Haukar mfl.kvenna

Stelpurnar okkar heimsóttu Víking í Víkina í dag og lönduðu glæsilegum sigri 26-27. Staðan í hálfleik var 13-9 en stelpurnar okkar voru aldeilis ekki á því að gefast upp og komu fílefldar til seinni hálfleiks og náðu fljótt að jafna. Undir lokin voru þær sterkari og náðu 3ja marka forystu sem Víkingur náði ekki að vinna.
Til hamingju stelpur, frábær sigur fyrir jólafríið.