Æfingaleikur við Þrótt miðvikudaginn 23 mars
Sæl öll.
Miðvikudaginn 23ja mars hef ég tekið boði Þróttar um að spila æfingaleik á Laugardalsvelli.
Leikirnir verða þannig uppbyggðir að við munum spila 2×25 mínútur og 5-10 mínútur í hálfleik.
Ég tel þetta vera góð leið til að undirbúa stelpurnar fyrir Faxaflóamótið sem verður 10.apríl.
Fyrri liðin eiga að mæta stundvíslega klukkan 9:30.
Þá tökum við góða upphitun og tilbúnar þegar leikur byrjar.