Haukar U tapaði gegn Gróttu í gær

Í gær áttust við Haukar U og Grótta í 1.deild karla í handknattleik. Þetta var þriðji leikur dagsins hjá meistaraflokki Hauka á Ásvöllum en fyrri tveir höfðu báðir unnist.  Leikurinn byrjaði afar fjörlega og Haukar náðu yfirhöndinni snemma leiks og héldu henni út fyrri hálfleikinn, staðan í hálfleik 16 – 13 Haukum í vil. Það […]

Fjögur stig í hús í dag

Í dag tóku meistaraflokkur kvenna á móti Gróttu og meistaraflokkur karla á móti Akureyri á Ásvöllum. Báðir leikirnir enduðu með Haukasigri og því fjögur stig í hús á Ásvöllum í dag. Haukastelpurnar byrjuðu mun betur í leiknum gegn Gróttu og komust fljótlega í stöðuna 9 – 4. Gróttustelpur náðu þó að minnka muninn fyrir leikhlé […]

Handboltaveisla fyrir alla fjölskylduna á laugardag

Haukar leggja mikla áherslu á skapa umgjörð á heimaleikjum félagsins þar sem fjölskyldan í Firðinum getur átt skemmtilegar samverustundir, notið fyrsta flokks skemmtunar og spennandi handboltaleikja. Við viljum bjóða upp á skemmtun við allra hæfi. Síðustu helgi var skemmtileg fjölskyldustemming á Ásvöllum þegar Haukar hófu leik í N1 deild karla og kvenna auk þess sem […]

Hvað segir Árni Þór? Haukar – Akureyri á morgun

Á morgun, laugardag, spilar meistaraflokkur Hauka í karlaflokki gegn Akureyri í 2.umferð N1-deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 16:00 en leikurinn verður spilaður á Ásvöllum. Fyrr um daginn leikur meistaraflokkur kvenna gegn Gróttu í N1-deild kvenna klukkan 14:00 og Haukar U lýkur svo deginum þegar þeir spila gegn Gróttu í 1.deild karla klukkan 18:15. Í liði […]

Haukar í horni í örum vexti

Starfsemi Hauka í horni fer vel af stað á nýrri handboltavertíð. Mikil fjölgun átti sér stað á fyrstu heimaleikjum félagsins um síðustu helgi og feikigóð stemmning var í VIP herberginu. Fjöldi félaga nýttu sér þá nýjung að geta keypt sér merkt sæti í handboltastúkunni á hagstæðum kjörum og er það mikið fagnaðarefni. Allir eru velkomnir í […]

Barnahorn Hauka

Handknattleiksdeild Hauka hefur ákveðið að bjóða upp á þá nýjung á heimaleikjum um helgar meistaraflokka deildarinnar að bjóða upp á barnagæsla á meðan leikjunum stendur. Upp hefur verið sett barnahorn sem staðsett verður hliðina á vellinum. Allir krakkar frá tveggja ára aldri eru velkomnir í barnahornið en forráðamenn þeirra barna sem eru á aldrinum 2 […]

Hanna Guðrún skrifar undir nýjan samning

Á fjölskylduhátíðinni á Ásvöllum á laugardag skrifaði einn af lykilleikmönnum meistaraflokks kvenna síðustu ára undir nýjan samning við félagið. Leikmaðurinn sem um ræðir er hinn magnaði hornamaður Hanna Guðrún Stefánsdóttir. Samningurinn var undirritaður í herbergi Hauka í horni eftir karlaleik Hauka og Stjörnunnar þar sem meistaraflokkur karla fóru með sigur af hólmi eftir að meistaraflokkurkvenna […]

Hvað segir Arnar Jón Agnarsson ?

Arnar Jón Agnarsson gekk til liðs við Hauka fyrir síðasta tímabil frá Fylki. Arnar Jón hefur hinsvegar verið að glíma við meiðsli undanfarna mánuði og ekki getað beitt sér að fullu með Haukum að undanförnu. Arnar Jón spilaði til að mynda ekki með gegn Haukum gegn Stjörnunni í fyrstu umferðinni en var samt í leikmannahópnum. […]

Birkir Ívar: Byrjunin á mótinu getur varla verið betri

Birkir Ívar Guðmundsson lék sinn fyrsta leik í N1-deild karla með Haukum, síðasta laugardag gegn Stjörnunni. Birkir átti þá góðan leik og varði þá ófáa boltana. Hann átti stóran þátt í því að öruggur sigur Hauka í leiknum varð staðreynd. Við tókum Birki að tali og spurðum hann aðeins spjörunum út. Við spurðum hann fyrst […]

Langur laugardagur hjá Haukum

Á laugardaginn næstkomandi verður nóg að gera á Ásvöllum, en þá verða þrír lmeistaraflokks leikir á Ásvöllum. Fyrst hefja stelpurnar leik klukkan 14:00 gegn Gróttu. Gróttu stelpur sigruðu fyrsta leik sinn í deildinni gegn FH en Hauka stelpurnar töpuðu gegn Stjörnunni. Klukkan 16:00 leikur síðan meistaraflokkur karla gegn Akureyri. Lið Akureyris tapaði fyrsta leiknum í […]