Haukaleikmenn í liði 2.umferðarinnar

Handbolti.is birtir eftir hverja umferð lið umferðarinnar í bæði N1-deild karla og kvenna. Og eiga Haukar fimm leikmenn að þessu sinni.

Línumaðurinn, Nína Arnfinnsdóttir var valin í lið umferðarinnar í N1-deild kvenna, en hún fór gjörsamlega á kostum í leiknum gegn Gróttu og var óstöðvandi þegar hún fékk boltann á línunni. 

Einnig fengu Haukar bestu umgjörðina í 2.umferð N1-deildar kvenna.

Í karlaliðinu eru tveir leikmenn frá Haukum, þeir Einar Örn Jónsson og Gísli Guðmundsson.

Einar Örn skoraði þau ófá mörking gegn Akureyri og Gísli varði þá ófáa boltana í leiknum en þeir báðir áttu stórleik.

Haukar fengu eins og í kvennaboltanum hrós fyrir bestu umgjörðina.

Í 1.deild karla áttu Haukar U tvo leikmenn, þá Tjörva Þorgeirsson og Þórð Rafn Guðmundsson, en U-liðið tapaði með einu marki gegn Gróttu í æsispennandi leik.

Við minnum á meistaraflokks leikinn hjá körlunum á morgun í Dignranes, klukkan 19:30, meira um þann leik kemur á síðuna á morgun.