HK – Haukar í kvöld, Frítt á leikinn

Í kvöld, klukkan 19:30 tekur HK á móti Hauku í N1-deild karla í 3.umferð. Þetta er fyrsti leikur 3.umferðarinnar en leikurinn er leikinn í kvöld þar sem Haukar eru að fara spila í meistaradeildinni á sunnudaginn, á Ásvöllum.

HK menn ætla að blása til sannkallaðar fjölskylduhátíðar í kvöld, en frítt verður á leikinn fyrir ALLA í boði Steak and play.

Gunnar Sigurðsson, oftast þekktur sem Gunni „samloka“ í sjónvarpsþættinum „strákarnir“ mun halda uppi stemmingunni að sinni alkunnu snilld. Auk þess fá heppnir áhorfendur að spreyta sig á slárskoti frá miðju í hálfleik og fá þeir sem hitta í slá vegleg verðlaun í boði HK og Steak and Play.

 

Viðtal við leikmann Hauka mun birtast á síðunni í hádeginu, en þar tjáir hann sig um leikinn í kvöld.

Við hvetjum Hauka fólk til að fjölmenna á leikinn, en leikir þessa liða hafa ávallt verið jafnir og spennandi og ekki á hverjum degi sem frítt er á svona stórleiki.