Sigur í framlengdum leik

Mfl. kvenna tryggði sér sæti í undanúrslitum Powerade-bikarsins eða hinum fjóru fræknu á sunnudagskvöld með sigri á Val. Leikið verður á fimmtudagskvöld í Laugardalshöll og eiga Haukar leik kl. 19.00.

Sigur Hauka á sunnudagskvöld gegn var allt annað en auðsóttur og þurfti framlengja leikinn til þess að knýja fram úrslit.

Staðan eftir venjulegan leiktíma var 63-63 og voru það Valsarar sem jöfnuðu leikinn með ævintýralegri þriggja-stiga körfu um leið og tíminn rann út.

Í framlengingunni voru það Haukar sem reyndust sterkari aðilinn og höfðu betur 73-67.

Stigahæst hjá Haukum var Kristrún Sigurjónsdóttir með 26 stig og Guðbjörg Sverrisdóttir skoraði 23. Hjá Val var Signý Hermannsdóttir stigahæst með 17 stig og 17 fráköst.

Umfjöllun og myndir úr leiknum má sjá á Karfan.is

Mynd: Helena Brynja Hólm að setja tvö af stigum sínumstebbi@karfan.is