Búið er að draga í 32-liða úrslit karla

Búið er að draga í 32 – liða úrslitum Eimskipsbikarnum en í kvöld var dregið í beinni í íþróttaþættinum, Sportið á RÚV. Haukar sátu hjá en í pottinum voru samt sem áður tvö Hauka lið, Haukar 2 og Haukar U.

Haukar U komu fyrst uppúr pottinum og þar af leiðandi fengu þeir heimaleik gegn Gróttu 2.

Haukar 2 komu einnig fyrr upp úr pottinum og mæta þeir 1.deildarliði Selfoss.

Leikirnir fara fram  5. og 6. október.

Drátturinn í heild sinni er hér að neðan:

Haukar U – Grótta 2

ÍR – Afturelding

Stjarnan 3 – Fjölnir

Valur – HK

Fram 2 – Þróttur R.

Víkingur 2 – FH

Stjarnan – Víkingur

ÍBV – Fram

KS – Afturelding 2

Stjarnan 2 – Valur 2

Selfoss 2 – HK 2

Haukar 2 – Selfoss

FH 2 – KA

(HKR) Reykjanesbær – Akureyri

Afturelding 3 – Grótta