Dregið í Eimskipsbikarnum í kvöld

Í kvöld, í beinni útsendingu á RÚV klukkan 22:20 verður dregið í 32-liða úrslit karla í Eimskipsbikar karla.

Tvö Haukalið verða í pottinum í kvöld og því verður áhugavert að sjá á móti hverjum þau mæta, en hver veit hvort þau mæti innbyrðis.

Þau lið sem um ræðir, er Haukar U sem spilar í 1.deildinni.

Svo má ekki gleyma gömlu kempunum sem leika sem Haukar 2 en það lið spilar í Utandeild HSÍ. 

Haukar, liðið sem spilar í N1-deildinni mun sitja hjá í fyrstu umferð.

Leikirnir fara síðan fram dagana 5. og 6. október.