Haukar taka á móti Fjölni á laugardaginn

Haukaliðið tekur á móti Fjölni í 4.umferð 1.deildar karla á laugardaginn á Ásvöllum. Hefst leikurinn stundvíslega klukkan 14:00. Eftir tap í fyrsta heimaleik sumarsins er lítið annað að gera en að tryggja sér þrjú stig á laugardaginn og fagna þar með fyrsta sigrinum af vonandi fjölmörgum á DB Schenkervellinum. Haukar hafa byrjað mótið nokkuð vel, […]

3 á 3 og pub quiz

Það styttist óðum í föstudaginn þar sem 3 á 3 mót verður haldið á Ásvöllum og svo Pub Quiz strax á eftir. Skráning í mótið er í fullum gangi og ekki seinna vænna að smala í lið og skrá sig ef menn eða konur ætla að taka þátt. Um leið og mótið er búið verður […]

Bikarleikur hjá stelpunum í kvöld

Haukastelpur eiga bikarleik í kvöld á Schenkervellinum á Ásvöllum kl.20.00. Andstæðingurinn eru nágrannar okkar frá Álftanesi. Bæði lið spila í 1.deild og hafa þar lokið einum leik hvort. Haukar unnu Fram 2-1 í miklum baráttu leik sl. föstudagskvöld en Álftanes steinlág fyrir sterku liði Fylkis 1-5.  Leikurinn í kvöld er í 2. umferð bikarkeppninnar, en […]

Flottur sigur á Selfossi

Haukarnir gerðu góða ferð austur fyrir fjall í kvöld og tóku öll stigin sem í boði voru heim í Fjörðinn. Mörk Hauka skoruðu þeir Hilmar Trausti, Brynjar Ben. og Hilmar Geir. Næsti leikur Hauka er á heimavelli, laugardaginn 1.júní gegn Fjölni.  Haukar og Selfoss voru með jafn mörg stig fyrir leikinn og það var búist við hörkuleik […]

Haukastelpur taka á móti Fram á morgun

Fyrsti leikur Hauka í 1.deild kvenna þetta sumarið fer fram á Schenkervellinum á Ásvöllum annað kvöld, föstudagskvöld, kl.19.15. Andstæðingar okkar stúlkna að þessu sinni eru Frammarar úr Safamýri og Grafarholti. Haukaliðið er mikið breytt frá síðasta ári, margir leikmenn hafa horfið á braut, flestir hafa hætt knattspyrnuiðkun en einhverjir hafa farið til annara liða. Einn […]

Allir á Selfoss í kvöld!

Í kvöld kl. 19:15 hefst leikur Hauka og Selfoss á heimavelli þeirra síðarnefndu en um er að ræða þriðju umferð sumarsins í 1. deildinni í knattspyrnu.  Okkar strákar unnu fyrsta leikinn gegn Þrótti á útivelli en biðu lægri hlut gegn Grindavík á heimavelli sl. föstudag.   Okkar menn eru staðráðnir í að ná í þrjú […]

Selfoss – Haukar í kvöld

Þriðja umferðin í 1.deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Þar eigast til að mynda Selfoss og Haukar við í hörkuleik sem fram fer á Selfossi. Leikurinn hefst klukkan 19:15.  Bæði lið hafa unnið einn leik og tapað öðrum og eru því bæði með þrjú stig í deildinni.  Haukaliðið sigruðu Þróttara á útivelli 2-1 […]

Gunnhildur og Helena í landsliðinu

Sverrir Þór Sverrisson hefur valið 12 manna lið Íslands sem keppir á Smáþjóðaleikunum í endaðan maí. Gunnhildur Gunnarsdóttir og Helena Sverrisdóttir eru í liðinu. Margrét Rósa Hálfdanardóttir var í æfingarhópnum sem var valin fyrst. Í dag var blaðamannafundur vegna Smáþjóðaleikanna og þar tók Karfan.is Helenu tali – sjá hér. Óskum við þeim til hamingju og […]

3 á 3 mót Hauka B og Pub Quiz á eftir

Haukar B standa fyrir 3 á 3 móti föstudaginn 31. maí næstkomandi á heimavelli sínum Ásvöllum (Schenker-höllin). Mótið verður opið fyrir alla hvort sem þú ert 5 eða 65 og ekki verður gert upp á milli kynja. Leikmenn í úrvalsdeild eða 1. deild karla eru þó ekki gjaldgengir. Þrír til fjórir geta verið saman í […]

Úrslit í Getraunaleiknum

Á föstudaginn á undan leik Hauka og Grindavíkur voru kynnt úrslit í Getraunaleik Hauka – Vorleik. Fjöldi áhugasamra getraunaspekinga var samankominn og naut veglegra veitinga sem voru í boði getraunanefndarinnar.  Kynnir var Jón Björn Skúlason  sem naut dyggrar aðstoðar Sigga Mey. 1. verðlaun Meistardeildar hlaut hið  þekkta lið Gissurs Guðmundssonar – Steinn með 49 stig […]