Ákveðið hefur verið að boða til mömmuskvísukvölds fimmtudaginn 24. nóvember nk. Markmiðið er að hafa gaman saman, spjalla, spila kleppara til að fá útrás fyrir keppnisskapið og losa um jólastress. Það verða léttar veigar í boði og óvænt uppbrot. Endilega takið kvöldið frá. Tilefnið er styrktarkvöld til handa barna- og unglingastarfi knattspyrnudeildar Hauka (stúlkna og pilta). […]