Bikarleikur hjá stelpunum í kvöld

HaukarHaukastelpur eiga bikarleik í kvöld á Schenkervellinum á Ásvöllum kl.20.00. Andstæðingurinn eru nágrannar okkar frá Álftanesi. Bæði lið spila í 1.deild og hafa þar lokið einum leik hvort. Haukar unnu Fram 2-1 í miklum baráttu leik sl. föstudagskvöld en Álftanes steinlág fyrir sterku liði Fylkis 1-5. 

Leikurinn í kvöld er í 2. umferð bikarkeppninnar, en Haukar lögðu Víking Ólafsvík 8-1 í fyrstu umferðinni á meðan Álftnesingar lögðu ÍR 4-2. Sigur í þessari 2. umferð kemur sigurliðinu í 16-liða úrslit þar sem inn koma liðin úr Pepsídeildinni. Það er því sannarlega eftir miklu að slægjast með því að vinna leikinn í kvöld.

Allir á völlinn!