3 á 3 og pub quiz

Það styttist óðum í föstudaginn þar sem 3 á 3 mót verður haldið á Ásvöllum og svo Pub Quiz strax á eftir. Skráning í mótið er í fullum gangi og ekki seinna vænna að smala í lið og skrá sig ef menn eða konur ætla að taka þátt.

Um leið og mótið er búið verður Pub Quiz haldið uppi á palli. Þemað að þessu sinni er úrslitakeppnir í körfubolta hér heima og erlendis sem og almenni flokkurinn verður á sínum stað með alls kyns góðmeti.

Vonumst til að sjá ykkur sem flest til að gera kvöldið skemmtilegra