Allir á Selfoss í kvöld!

HaukarÍ kvöld kl. 19:15 hefst leikur Hauka og Selfoss á heimavelli þeirra síðarnefndu en um er að ræða þriðju umferð sumarsins í 1. deildinni í knattspyrnu.  Okkar strákar unnu fyrsta leikinn gegn Þrótti á útivelli en biðu lægri hlut gegn Grindavík á heimavelli sl. föstudag.  

Okkar menn eru staðráðnir í að ná í þrjú stig á Selfossi og mikilvægt að Hauka-fólk fjölmenni á leikinn og styðji strákana til sigurs.