Gunnhildur og Helena í landsliðinu

Gunnhildur er í landsliðinu sem tekur þátt á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg í enda maí - karfan.isSverrir Þór Sverrisson hefur valið 12 manna lið Íslands sem keppir á Smáþjóðaleikunum í endaðan maí. Gunnhildur Gunnarsdóttir og Helena Sverrisdóttir eru í liðinu. Margrét Rósa Hálfdanardóttir var í æfingarhópnum sem var valin fyrst.

Í dag var blaðamannafundur vegna Smáþjóðaleikanna og þar tók Karfan.is Helenu tali – sjá hér.

Óskum við þeim til hamingju og góðs gengis á mótinu sem hefst 29. maí gegn Möltu.

Dagskrá liðsins:
29. maí
Ísland – Malta

31. maí
Ísland – Kýpur
 
1. júní
Ísland – Lúxemborg

Liðið:
Pálína Gunnlaugsdóttir · Keflavík
Sara Rún Hinriksdóttir · Keflavík
Ingunn Embla Kristínardóttir · Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík
Hildur Sigurðardóttir · Snæfell
Hildur Björg Kjartansdóttir · Snæfell
Kristrún Sigurjónsdóttir · Valur
Hallveig Jónsdóttir · Valur
Petrúnella Skúladóttir · Grindavík
Gunnhildur Gunnarsdóttir · Haukar
Helena Sverrisdóttir · Good Angels Kosice, Slóveníu
María Ben Erlingsdóttir · Saint Gratien, Frakklandi
 
Sverrir Þór Sverrisson – Þjálfari
Anna María Sveinsdóttir – Aðstoðarþjálfari