3 á 3 mót Hauka B og Pub Quiz á eftir

Haukar B standa fyrir 3 á 3 móti föstudaginn 31. maí næstkomandi á heimavelli sínum Ásvöllum (Schenker-höllin). Mótið verður opið fyrir alla hvort sem þú ert 5 eða 65 og ekki verður gert upp á milli kynja. Leikmenn í úrvalsdeild eða 1. deild karla eru þó ekki gjaldgengir.

Þrír til fjórir geta verið saman í liði og verða leikirnir 10 mínútur eða upp í 25 stig. Gefin verða tvö og þrjú stig fyrir körfuna og verður miðað við að liðin spili minnst þrjá leiki. Leikjafjöldi fór þó eftir skráningu og er um að gera að skrá sig sem fyrst þar sem að takmörkun verður á fjölda liða.

Einungis kostar 2500 krónur á lið að taka þátt og sigurvegarinn gengur burtu með bikar og eitthvað fleira. Hægt er að skrá sig á emil@haukar.is eða á stefan@haukar.is og líkur skráningu miðvikudaginn 29. maí. Við skráningu þarf að skila inn nöfnum leikmanna og heiti liðs.

Að móti loknum fer fram Pub Quiz uppi á palli eða um 21:00 og þarf varla að taka það fram að þemað er körfubolti og þá sérstaklega úrslitakeppnin hérlendis sem og erlendis. Síðasta Quiz sem haldið var í janúar slóg í gegn og var það lið Hauka B sem bar sigur úr býtum og spurning hvort að þeir endurtaki leikinn í þetta sinn.

Taktu því daginn frá og gerðu þér gott körfubolta kvöld.