Myndir

Myndir af bikarúrslitadeginum hjá stelpunum og leiknum í gær gegn ÍR hjá strákunum eru komnar inn.Í leiðinni vil ég benda á að þeir sem skrá sig á hjá okkur geta sent okkur fréttir. Upplagt væri t.d. fyrir yngri flokkana að láta vita af sér þar.

Haukar Deildarmeistarar

Leikurinn í dag gegn ÍR var sá síðasti í deildinni og með sigrinum tryggðum við okkur efsta sætið og þar með deildarmeistaratitilinn. Okkur nægði jafntefli en strákarnir voru ekkert á því að vera með eitthvað hálfkák frekar en fyrri daginn og kláruðu leikinn í miklum baráttuleik. Við vorum með yfirhöndina lengst af þó svo að […]

Haukar-GróttaKR 8-liða úrslit

Úrslitakeppnin byrjaði vel hjá stelpunum okkar er þær unnu öruggan sigur 29-24 á GróttuKR á Ásvöllum í dag. Þær skoruðu fyrsta markið, gestirnir jöfnuðu 1-1 en síðan höfðu stelpurnar okkar yfirhöndina það sem eftir var, 7-2, 10-4, 14-10 og í hálfleik var staðan 17-13. Þær héldu forskotinu í seinni hálfleik og voru alltaf skrefinu á […]

Úrslitakeppni kvenna

Nú er komið að úrslitakeppninni hjá stelpunum . Mótherjar þeirra í 8-liða úrslitum eru skvísurnar úr GróttuKR. Fyrsti leikurinn er heima á Ásvöllum á morgun, laugardag kl. 13.00 og annar leikur á Nesinu þriðjudaginn 1. apríl kl. 19.15. Ef til þriðja leiks kemur verður hann á Ásvöllum fimmtudaginn 3. apríl kl. 19.15. Við hvetjum alla […]

UMFA-Haukar Essó deild karla

Strákarnir sóttu tvö stig í Mosó í kvöld, er þeir unnu sigur á Aftureldingu. Ekki er hægt að hrósa strákunum fyrir “góðan” leik en þeir gerðu það sem til þurfti. Þeir voru alltaf með yfirhöndina en heimamenn náðu þó að jafna nokkrum sinnum en komust aldrei yfir. Góður sigur og sitja stákarnir okkar nú á […]

ÍBV-Haukar ESSÓ deild kvenna

Í gær var spiluð síðasta umferðin í Essó deild kvenna. Stelpurnar okkar áttu leik við ÍBV í Eyjum og töpuðu þar 27-21. Leikurinn var nokkuð jafn í upphafi, heimamenn þó alltaf fyrri til að skora, en stelpurnar okkar náðu að jafna, 5-5, 10-10, 15-15. Í stöðunni 19-18 og 20-19 fengu þær mörg tækifæri til að […]

Haukar-Fram ESSÓ deild karla

Sigurgangan hélt áfram á Ásvöllum í kvöld þegar strákarnir okkar tóku á á móti Fram. Leiknum lauk með stórsigri okkar manna 34-26. Leikurinn var nokkuð jafn í byrjun, gestirnir skoruðu fyrsta markið en strákarnir okkar jöfnuðu strax 1-1 og komust í 4-2. Gestirnir jöfnuðu þá 4-4 og aftur 5-5 en eftir það höfðu okkar strákar […]

Haukar-FH ESSÓ deild kvenna

Stelpurnar okkar tóku á móti FH á Ásvöllum í dag og unnu góðan sigur 30-28. Haukarnir byrjuðu leikinn mjög vel, skoruðu fyrstu fjögur mörkin og stjórnuðu leiknum það sem eftir var. Staðan í hálfleik var 13-12 og náðu gestirnir að jafna í byrjun seinni hálfleiks 13-13 og 14-14 en eftir það voru okkar stelpur alltaf […]

FH-HAUKAR ESSÓ deild karla

Eins og stelpurnar í gær mættu strákarnir okkar sjóðheitir í Krikann í dag þar sem þeir unnu öruggan og glæsilegan sigur á fimleikapiltum 27-33. Strax í upphafi var ljóst hvert stefndi. Haukar mættu tilbúnir til leiks og staðan var 1-6 eftir um 9 mín. leik og náðu þeir mest átta eða níu marka forystu. Staðan […]

Víkingur-Haukar ESSÓ deild kvenna

Stelpurnar okkar mættu sjóðheitar í Víkina í dag og unnu stórsigur 22-30. Þær byrjuðu leikinn af krafti, skoruðu fyrstu sex mörk leiksins, staðan 0-6, frábær byrjun og skoruðu heimamenn ekki fyrr en eftir rúmlega 9 mín. leik. Stelpurnar okkar héldu áfram að hamra og staðan í hálfleik var 7-14. Sóknin var ágæt en það var […]