Í gær var spiluð síðasta umferðin í Essó deild kvenna. Stelpurnar okkar áttu leik við ÍBV í Eyjum og töpuðu þar 27-21. Leikurinn var nokkuð jafn í upphafi, heimamenn þó alltaf fyrri til að skora, en stelpurnar okkar náðu að jafna, 5-5, 10-10, 15-15. Í stöðunni 19-18 og 20-19 fengu þær mörg tækifæri til að jafna en ekkert gekk og heimamenn sigu framúr.