Strákarnir sóttu tvö stig í Mosó í kvöld, er þeir unnu sigur á Aftureldingu. Ekki er hægt að hrósa strákunum fyrir góðan leik en þeir gerðu það sem til þurfti. Þeir voru alltaf með yfirhöndina en heimamenn náðu þó að jafna nokkrum sinnum en komust aldrei yfir.
Góður sigur og sitja stákarnir okkar nú á toppnum í deildinni með 2ja stiga forskot fyrir síðustu umferðina.