Úrslitakeppni kvenna

Nú er komið að úrslitakeppninni hjá stelpunum . Mótherjar þeirra í 8-liða úrslitum eru skvísurnar úr GróttuKR. Fyrsti leikurinn er heima á Ásvöllum á morgun, laugardag kl. 13.00 og annar leikur á Nesinu þriðjudaginn 1. apríl kl. 19.15. Ef til þriðja leiks kemur verður hann á Ásvöllum fimmtudaginn 3. apríl kl. 19.15.
Við hvetjum alla til að mæta á leikina og styðja stelpurnar okkar því að sjálfsögðu ætlum við alla leið ………………