Haukar-GróttaKR 8-liða úrslit

Úrslitakeppnin byrjaði vel hjá stelpunum okkar er þær unnu öruggan sigur 29-24 á GróttuKR á Ásvöllum í dag. Þær skoruðu fyrsta markið, gestirnir jöfnuðu 1-1 en síðan höfðu stelpurnar okkar yfirhöndina það sem eftir var, 7-2, 10-4, 14-10 og í hálfleik var staðan 17-13. Þær héldu forskotinu í seinni hálfleik og voru alltaf skrefinu á undan, náðu mest átta marka mun 29-21 en slökuðu á í lokin og GróttaKR minnkaði muninn í fimm mörk.
Brynja var markahæst með 8 mörk og Hanna með 7.