Víkingur-Haukar ESSÓ deild kvenna

Stelpurnar okkar mættu sjóðheitar í Víkina í dag og unnu stórsigur 22-30.
Þær byrjuðu leikinn af krafti, skoruðu fyrstu sex mörk leiksins, staðan 0-6, frábær byrjun og skoruðu heimamenn ekki fyrr en eftir rúmlega 9 mín. leik. Stelpurnar okkar héldu áfram að hamra og staðan í hálfleik var 7-14. Sóknin var ágæt en það var sérstaklega vörnin sem var frábær og markvarslan eftir því.
Senni hálfleikur var jafnari, heimamenn bættu spil sitt verulega en okkar stelpur héldu haus og sigurinn var aldrei í hættu.
Glæsileg tvö stig.