FH-HAUKAR ESSÓ deild karla

Eins og stelpurnar í gær mættu strákarnir okkar sjóðheitir í Krikann í dag þar sem þeir unnu öruggan og glæsilegan sigur á fimleikapiltum 27-33. Strax í upphafi var ljóst hvert stefndi. Haukar mættu tilbúnir til leiks og staðan var 1-6 eftir um 9 mín. leik og náðu þeir mest átta eða níu marka forystu. Staðan í hálfleik var 12-19. Í seinni hálfleik slökuðu okkar menn aðeins á klónni og náðu heimamenn að minnka muninn í fjögur mörk en komust aldrei nær. Fimleikadrengirnir fundu engin svör við leikskipulagi okkar manna. Vörnin var glimrandi og sóknin gekk nokkuð smurð, liðið er greinilega að setja sig í gírinn fyrir lokaátökin.

Frábær sigur sem sýnir hverjir eru bestir í bænum.