Haukar-FH ESSÓ deild kvenna

Stelpurnar okkar tóku á móti FH á Ásvöllum í dag og unnu góðan sigur 30-28. Haukarnir byrjuðu leikinn mjög vel, skoruðu fyrstu fjögur mörkin og stjórnuðu leiknum það sem eftir var. Staðan í hálfleik var 13-12 og náðu gestirnir að jafna í byrjun seinni hálfleiks 13-13 og 14-14 en eftir það voru okkar stelpur alltaf yfir, mest fimm mörk 20-15 og 22-17. Undir lokin slökuðu þær aftur aðeins á og gestirnir náðu að minnka muninn í eitt mark 29-28 en nær komust þær ekki og frábær sigur í höfn.
Hin magnað Hanna var markahæst með 12 mörk og línuskelfirinn Inga Fríða var með 9 mörk.