Grótta/KR í Evrópukeppninni

Minnum alla á leikinn hjá Gróttu/KR á sunnudaginn kl.20:00 við sænska liðið Savehof. Þeir töpuðu leiknum úti og þurfa því á stuðningi allra að halda til að komast áfram í 4-liða úrslit keppninnar. Heimasíða {Tengill_14}

Haukar-Fylkir/ÍR ESSÓ deild kvenna

Stelpurnar okkar unnu glæsilegan sigur á Fylki/ÍR á Ásvöllum í kvöld 36-20. Gestirnir skoruðu fyrsta markið en svo komu sjö í röð frá okkar stelpum og staðan orðin 7-1 og nokkuð ljóst hvert stefndi. Haukastelpurnar tóku völdin og sýndu hver “réði” inná vellinum. Taflan sýndi tölur eins og 11-3, 18-6 og 19-8 í hálfleik og […]

Haukar-Þór ESSÓ deild karla

Tvö stig í pottinn er strákarnir tóku á móti Þór á Ásvöllum í kvöld. Okkar menn byrjuðu leikinn af krafti, 3-0 en gestirnir jöfnuðu 3-3. Þá tóku strákarnir okkar leikinn í sýnar hendur og spiluðu fantavel, 7-3, 15-9 og í hálfleik var staðan 16-10. Vörnin var góð og markvarslan fín og eins gekk sóknin fínt. […]