Fréttasafn

  • Haukar – ÍR

    Það lið sem skilgreint var BEST sýndi það að slík lið geta spilað fjandi illa. Leikurinn byrjaði með miklum látum og virtist sem fyrstu mínúturnar að liðin væru frekar að keppast um fjölda marbletta frekar en marka. Okkar menn gáfu eftir í baráttunni og virtust gestirnir bókstaflega slá vopnin úr okkar höndum. Þrátt fyrir það…

  • Æfing 2. desember

    Skákæfingar eru haldnar á þriðjudögum kl 19:30 í Haukahúsinu að Ásvöllum. Mjög góð aðstaða, kaffi í boði og kók og prins á vægu verði. Mæting hefur verið góð í haust, 12-20 manns á hverri æfingu og góð stemmning. Úrslit á æfingu 2. desember varð eftirfarandi: 1-2. Stefán Freyr Guðmundsson 13,5 af 15 1-2. Þorvarður Fannar…

  • Haukar eru alltaf bestir

    Þessi grein er bönnuð öðrum en Haukamönnum !!! Það er oft gaman að leika sér að tölum og úrslitum og stundum hægt að fá hvaða útkomu sem er ef hlutirnir eru settir þannig fram. Ef við skoðum úrslit í nokkrum leikjum í Meistaradeildinni getum við sé hvað við Haukar erum rosalega góðir. Hér eru nokkrar…

  • Vardar Skopje-Haukar

    Leikurinn í Meistaradeildinni hjá stákunum okkar við Vardar Skopje í Makedoníu hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma. Við skulum senda strákunum okkar sterka og góða strauma yfir hafið. Leikurinn verður örugglega erfiður og mjög erfitt er að sækja Makedoníumenn heim. Eftir 10 mín. leik er staðan 4-5. Staðan eftir 25 mín er 8-13 og við…

  • Haukar-Fram mfl.kvenna

    Stelpurnar unnu glæsilegan stórsigur 35-12 á Fram á Ásvöllum í dag. Það var jafnt fyrstu mínútur leiksins, 1-1, 2-2 og 3-3. Þá tóku stelpurnar okkar öll völd á vellinum og breyttu stöðunni í 13-3. Staðan í hálfleik var 15-5. Seinni hálfleikur var á sömu lund, forystan jókst 20-7, 26-8, 30-10 og lokatölur 35-12. Allir leikmenn…

  • Meistaradeildin – Makedonía

    Það er nóg að gera hjá stákunum okkar og stutt var stoppið á landinu. Þeir komu heim frá Barcelona seint á sunnudagskvöldið, spiluðu við Breiðablik í gærkvöldi og héldu síðan utan í morgun áleiðis til Makedoníu. Þeir stoppa í Vín í dag og fljúga þaðan á morgun, föstudag til Makedoníu og lenda í Skopje um…

  • Breiðablik-Haukar mfl.ka.

    Strákarnir unnu öruggan skyldusigur á Breiðablik í Smáranum í kvöld. Leikurinn endaði 26-33 og í hálfleik var staðan 10-19. Leikurinn var frekar daufur á að horfa, strákarnir okkar spiluðu á hálfum hraða enda mótstaðan ekki mikil. Mikið var um mistök hjá báðum liðum og eins hjá þeim svartklæddu. Það var kannski ekki von á öðruvísi…