Fréttasafn

  • Haukar – Barcelona meira

    Haukamaðurinn „Haukari“ eins og hann er kallaður á spjallþráðum sport.is lýsir stemmingunni hér heima einstaklega vel, látum hans orð fljóta hér með. Ég horfði því miður á leikinn í gegnum sjónvarpið að þessu sinni á hinni frábæru sjónvarpsstöð Sýn sem hefur tekið að sér að hefja handboltan til vegs og virðingar á ný. Við hittumst…

  • Haukar á leid heim

    Klukkan er að verða 3 hér í Barcelona og þreyttir FerðaHaukar eru að klára að pakka í töskur og gera sig klára fyrir heimferð. Við förum i loftið kl. 19:00 að staðartíma og lendum í Keflavík um hálf ellefu. Flugstjórinn okkar og forseti, Þorgeir Haraldsson hefur lofað góðu flugi, enga ókyrrð eða annað. Hér eru…

  • Haukar í Barcelona

    FerðaHaukar í Barcelona biðja fyrir kærar kveðjur heim. Héðan er auðvitað allt frábært ad frétta eftir ad heimsklassaliðið Barcelona rétt marði jafntefli á frábæru Haukaliði. Stemmingin hér er ólýsanleg, menn æptu og öskrudu þegar leiknum lauk og grétu gegnum gleðitárin. Vid tökum stórt upp í okkur og segjum að þessi úrslit séu ein þau bestu…

  • Barcelona – Haukar

    VÁÁÁÁÁ Barcelona rétt marði jafntefli gegn gífurlega sterku liði Hauka nú rétt í þessu, ótrúlegur leikur þar sem okkar strákar höfðu yfirhöndina nánast allan leikinn. Birkir Ívar með stórleik ásamt bara öllu liðinu, þvílikt og annað eins. Þeir fylgdu eftir góðum leik hér heima á móti Magdeburg þar sem við vorum grátlega nálægt því að…

  • Myndirnar komnar

    Myndirnar loksins komnar frá Magdeburgar leiknum(ansans tölvudrasl). En ég gleymdi náttúrulega að nefna það að stelpurnar okkar eru með í för til Spánar og ætla að taka nokkra leiki og auðvitað styðja við bakið á strákunum ásamt öllum hinum í leiknum gegn börsungum.

  • Nokkrir punktar í tilefni dagsins

    Myndir frá Magdeburgar leiknum koma loksins í dag eftir langa bið. Þær eru þó nokkrar þannig að þið takið bara frá einhverjar mínútur í kvöld. Haukahalarófan er kominn til Spánar og eru í þessum töluðu orðum á leiðinni á hótelið. Hópurinn lagði af stað um sjöleytið í morgun og vonandi koma fréttir og myndir á…

  • Haukar-Magdeburg

    Strákarnir fylgdu eftir stórglæsilegri innkomu með magnaðri spilamennsku sem dugði næstum til að vinna eitt af sterkustu handknattleiksliðum heims. Leikurinn við þýska liðið SC-Magdeburg var hin mesta skemmtun frá byrjun til enda og rúmlega það. Strákarnir heldu í þýsku meistarana allan fyrri hálfleikinn og var staðan í hálfleik 18-19 þeim þýsku í vil. Seinni hálfleikurinn…

  • Haukar-Magdeburg

    Handboltaveislan heldur áfram. Sunnudaginn 16. nóvember kl. 20.00 spila Haukar við stórliðið Magdeburg með Íslendingana Alfreð Gíslason og Sigfús Sigurðsson í broddi fylkingar. Þetta er síðari leikur Hauka gegn Magdeburg í B-riðli Meistaradeildarinnar og verður allt lagt undir til að leggja þá að velli. Magdeburg er eitt besta félagslið Evrópu og er með stjörnur í…