Haukar á leid heim

Klukkan er að verða 3 hér í Barcelona og þreyttir FerðaHaukar eru að klára að pakka í töskur og gera sig klára fyrir heimferð. Við förum i loftið kl. 19:00 að staðartíma og lendum í Keflavík um hálf ellefu. Flugstjórinn okkar og forseti, Þorgeir Haraldsson hefur lofað góðu flugi, enga ókyrrð eða annað.
Hér eru allir glaðir og í fínu formi og brosið fer ekki af nokkrum manni.

Kveðja frá Barcelona. Sjáumst á Íslandi í kvöld.