Haukar í Barcelona

FerðaHaukar í Barcelona biðja fyrir kærar kveðjur heim. Héðan er auðvitað allt frábært ad frétta eftir ad heimsklassaliðið Barcelona rétt marði jafntefli á frábæru Haukaliði. Stemmingin hér er ólýsanleg, menn æptu og öskrudu þegar leiknum lauk og grétu gegnum gleðitárin. Vid tökum stórt upp í okkur og segjum að þessi úrslit séu ein þau bestu sem íslenskt félagslið hefur náð. Þvílíkur sigur fyrir Hauka og þvílíkur sigur fyrir íslenskan handbolta og íslenskar íþróttir.
Strákarnir okkar áttu sinn besta leik í langan tíma og voru vel studdir af okkar áhorfendum. Þeir tvö hundruð FerðaHaukar sem eru í Barcelona voru ótrúlegir á leiknum og áttu heimamenn ekki roð í íslenska kórinn.
Við fullyrðum að úrslit leiksins eru heimsviðburður í handboltaheiminum.

Bestu kveðjur frá okkur öllum og ÁFRAM HAUKAR