Fréttasafn

  • Uppselt til Barcelona

    Það er uppselt í Barcelonaferðina, rúmlega 190 manns hafa gengið frá staðfestingu og vélin orðin TROÐFULL. Eins og sönnum FerðaHaukum sæmir ætlum við að hafa rosalega gaman þarna suðurfrá. Klára verður greiðslur fyrir helgina og verður ferðanefndin á skrifstofunni á Ásvöllum í kvöld frá kl. 19.00 til kl. 21.00, miðvikudag kl. 18.00 til 21.00, föstudag…

  • Haukar-Vardar

    Strákarnir unnu sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni í kvöld með því í að leggja Vardar Skopje frá Makedoníu í full spennandi leik. Við leiddum leikinn lengst af með 2-3 mörkum en hefðum átt að vera fleiri mörkum yfir ef vörin hefði haldið einhverju.. Birkir Ívar spilaði sérstaklega vel og var með 21 skot varið og…

  • Haukar-Vardar Skopje

    Minnum á leikinn í Meistaradeildinni hjá strákunum í kvöld kl. 20.00 á Ásvöllum. Eins og komið hefur fram er þetta gríðarlega mikilvægur leikur og strákarnir leggja örugglega allt undir til að ná 3ja sætinu í riðlinum. Mætum öll og styðjum íslenskan handbolta.

  • Meistaradeildin

    Það er kominn föstudagur og styttist í leikinn við Vardar Skopje í Meistaradeildinni á sunnudaginn kl. 20.00 á Ásvöllum. Þetta er mjög mikilvægur leikur, sá mikilvægast í deildinni til að ná 3ja sætinu í riðlinum. Við vitum öll að mikil deyfð hefur verið yfir strákunum okkar að undanförnu en við höfum tröllatrú á þeim og…

  • Haukar-KA SS-bikar mfl.ka.

    Hann endaði dapurlega leikurinn hjá strákunum á Ásvöllum í gærkvöldi. Þeir tóku á móti KA í 16-liða úrslitum SS-bikarsins og töpuðu leiknum 34-35. Fyrri hálfleikur var skelfilegur hjá strákunum okkar og virtust þeir algjörlega hafa gleymt hvernig spila á vörn. Gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörkin, jafnt var 4-4 en þá sigu gestirnir framúr, 6-10, 15-19…

  • Barcelonaferðin – Fundur ofl.

    Nú er allt að verða klárt varðandi ferðina okkar til Barcelona. Brottför verður frá Keflavík fimmtudaginn 20. nóv. kl. 9:00 með flugi FI808. Fjórum tímum seinna verður lent á flugvellinum Gerona sem er skammt frá Barcelona. Þaðan er rúta á hótelið Hotel Pere IV. Heimför verður á sunnudaginn 23. nóv. kl. 19:00 að staðartíma. Rúta…