Fréttasafn

  • Haukar-Créteil

    Þær voru erfiðar mínúturnar þegar leiknum lauk á Ásvöllum í gærkvöldi. Þrátt fyrir 25-24 sigur á Créteil var þungt í mönnum því eins marks sigur þýddi að Evrópuævintýrið var úti. Strákarnir okkar hikstuðu í byrjun leiks og gestirnir náðu tveggja marka forskoti 1-3. Þá hrökk vélin í gang hjá okkar mönnum og þeir skoruðu sex…

  • Haukar-Créteil

    Hó hó hó. Það verður sungið og trallað, klappað og stappað og þeir rauðu verða á hlaupum út um víðan völl. Svo enginn misskilji neitt þá erum við að tala um leikinn hjá stráknum okkur. Á sunnudagskvöldið kl. 20:00 spila þeir seinni leikinn við franska liðið Créteil í 16-liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa. Fyrri leikurinn var…

  • Landsliðið valið

    Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson Kronau-Östringen Reynir Reynisson Víkingur Björgvin Gústafsson HK Birkir Ívar Guðmundsson Haukar Hornamenn og línumenn: Guðjón Valur Sigurðsson TUSEM Essen Logi Geirsson FH Gylfi Gylfason Wilhelmshavener HV Einar Örn Jónsson SG Wallau Massenheim Sigfús Sigurðsson SC Magdeburg Róbert Sighvatsson HSG Wetzlar Róbert Gunnarsson Aarhus GF Vignir Svavarsson Haukar Bjarni Fritzson ÍR Fannar Þorbjörnsson…

  • Til lukku Íslendingar

    Nú rétt í þessu voru samþykkt lög á Alþingi um veitingu ríkisborgararéttar. Við óskum Aliaksandr Shamkuts og Söndru Anulyte til hamingju með íslenskan ríkisborgararétt. Við óskum einnig Íslendingum til hamingju með að fá svona frábæra þegna í hópinn.

  • Créteil-Haukar Evrópukeppnin

    Vorum að fá fyrstu tölur frá Frakklandi. Staðan eftir 0 mínútur er 0-0. Greinilegt á þessu fyrstu tölum að létt er yfir mönnum og bíðum við spennt eftir næstu tölum. Staðan eftir 5 mín. er Créteil 2 – Haukar 3. Fín byrjun. Eftir 10 mín. er staðan Créteil 4 – Haukar 5. Staðan Créteil 5…

  • Evrópukeppnin

    Eins og menn vita eru strákarnir okkar nú staddir í París og bíða spenntir eftir morgundeginum og leiknum við franska liðið US Créteil. Þetta er fyrri leikur liðanna í 16-liða úrslitum í Evrópukeppni bikarhafa. Seinni leikurinn verður á Ásvöllum sunnudaginn 21. des. kl. 20:00. Lið Créteil er í 3.sæti í frönsku deildinni með 30 stig…

  • Víkingur-Haukar mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar heimsóttu Víking í Víkina í dag og lönduðu glæsilegum sigri 26-27. Staðan í hálfleik var 13-9 en stelpurnar okkar voru aldeilis ekki á því að gefast upp og komu fílefldar til seinni hálfleiks og náðu fljótt að jafna. Undir lokin voru þær sterkari og náðu 3ja marka forystu sem Víkingur náði ekki að…

  • Haukar-FH

    Það var öruggur sigur hjá strákunum okkar í kvöld er þeir lögðu fimleikadrengina 32-29 á Ásvöllum í kvöld. Haukarnir byrjuðu leikinn betur 3-1, 6-3 en fimleikapiltar náðu að jafna 8-8. Þá gáfu okkar menn aðeins í og náðu ágætis forskoti 13-10 og 15-11 en misstu það niður í 16-15 í hálfleik. Í byrjun seinni hálfleiks…

  • Skákæfing 9. desember

    Þriðjudagsæfing var haldin að venju þann 9. desember. Alls mættu 14 manns. Úrslit urðu eftirfarandi. 1. Heimir Ásgeirsson 12v af 13 2. Sverrir Örn Björnsson 11 3. Jón Magnússon 10,5 4. Stefán Freyr Guðmundsson 10 5. Þorvarður Fannar Ólafsson 9 6. Stefán Pétursson 8 7. Ingi Tandri Traustason 7 8-9. Sverrir Þorgeirsson 5 8-9. Grímur…

  • Valur-Haukar mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar sóttu tvö stig á Hlíðarenda í gær er þær unnu Val 18-19 í skemmtilegum leik. Þær byrjuðu leikinn vel og náðu strax forystunni. Valur náði þó að jafna 6-6 en komust aldrei framúr og staðan í hálfleik var 8-10. Í seinni hálfleik náðum við mest 4 marka forskoti, heimamenn náðu að minnka munninn…